Syndum 2024 var sett í Ásvallalaug

24.10.2024

Syndum, landsátak í sundi var ræst með formlegum hætti í Ásvallalaug í morgun í fjórða sinn. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Þeir metrar sem landsmenn synda, á meðan á átakinu stendur, safnast saman og á forsíðu www.syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland.

Ávörp við setninguna fluttu Þórey Edda Elísadóttir, varaforseti ÍSÍ, Júlía Þorvaldsdóttir, varaformaður Sundsambands Íslands og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Þórey bauð fólk velkomið og kynnti átakið og kosti þess að vera með. Á eftir Þóreyju tók Júlía til máls og talaði um hvað sund sé gagnleg íþrótt fyrir alla aldurshópa. Ungbarnasundið auki til dæmis öryggi í vatni, styrki líkamann og auki samhæfingu og fyrir eldri borgara er sund frábært fyrir liðleika og stuðlar að léttari hreyfingu án álags á liðamót. Sundfélögin skapi einnig sterkt samfélög fyrir sundiðkendur og afreksfólk og stuðli að heilbrigðum lífsstí, félagslegri þátttöku og aukinni hvatningu til reglulegrar hreyfingar. Það mætti eiginlega kalla sundið þjóðaríþrótt Íslendinga. á eftir Júlí tók Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, til máls tók  og sagði frá því að Hafnarfjörður væri heilsueflandi bær síðan 2015 og það væri mikill metnaður í að styrkja íþróttastarf hvort sem það væri fyrir almenning eða afreksfólk. Hún minntist á öll frábæru íþróttamannvirkin í bænum sem hafa skilað sér í almennri ánægju og þátttöku bæjarbúa. En áður en hún setti verkefnið formlega hvatti hún til aukinnar þátttöku því sundið hjálpaði við andlega líðan og hugarró.
Sundiðkendur hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar syntu svo átakið formlega í gang. En þess má geta að Sundfélag Hafnarfjarðar er eina félagið á landinu sem hefur átt þátttakanda á Ólympíuleikinum síðna 1996. 

Munum eftir því hvað sund er frábært og verum með! Skráning hér
Fleiri myndir frá setningunni má sjá hér 

UM VERKEFNIÐ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2024. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.
Í átakinu taka landsmenn sig saman og synda hringi í kringum Ísland en í fyrra náðist að leggja að baki 20 hringi í kringum landið.